Búbblur & Bjór

Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall.
Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!
Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall.
Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!
Episodes
Episodes



Oct 25, 2026
Árið er 1986
Oct 25, 2026
Oct 25, 2026
1 hr 2 min
Tríóið er mætt, Birkir, Davíð og Þröstur og þeir eru í banastuði í þessum þætti, þeir ætla að fara yfir árið 1986 í tilefni þess að það eru 40 ár síðan það var, þá voru þeir allir fæddir, Birkir og Þröstur voru í leikskóla og Davíð á öðru ári í framhaldsskóla. Algjörar risaeðlur allir þrír. Þetta ár komu út magnaðar bíómyndir sem allir þekkja, tónlistin var mögnuð og ótrúlegir atburðir gerðust, eins og Chernobyl slysið, þessi þáttur er algjör veisla!
Oct 25, 2026
1 hr 2 min



Oct 18, 2026
Óútskýranlegir hlutir
Oct 18, 2026
Oct 18, 2026
57 min
Ripp, Rapp og Rupp. A.K.A. Birkir, Davíð og Þröstur ætla að fara yfir óútskýranlega hluti í þessum þætti, til dæmis þegar “Crystal skulls” finnast, London hamarinn og margt margt fleira, Birkir vill trúa því að þetta sé allt eitthvað mysterious dæmi en Davíð og Þröstur hafa sínar efasemdir og reyna að “debunka” þetta allt saman.Ekki bara gaman, heldur líka fræðsla í Búbblum & Bjór.
Oct 18, 2026
57 min



Oct 11, 2026
Topp 10 eitthvað
Oct 11, 2026
Oct 11, 2026
1 hr 15 min
Skytturnar þrjár eru mættar og Daði fær að vera með aftur, en einfaldlega vegna þess að strákarnir gleymdu honum í stúdíóinu í síðustu viku. Hann var kominn í góða heiminn og fattaði ekki neitt. En í þessum þætti er farið yfir allskyns topp 10 lista. Birkir var til dæmis með topp 10 hasarmyndir frá níunda áratugnum, Davíð strögglaði eitthvað við þann lista enda eldri en sólin, en Daði var með lista yfir 10 greddupöddur sem létu lífið í samlífi....sem er fínt orð yfir kynlíf!
Oct 11, 2026
1 hr 15 min



Oct 4, 2026
Miðaldra
Oct 4, 2026
Oct 4, 2026
1 hr 5 sec
Þrír miðaldra karlar, Birkir, Davíð og Þröstur fá fjórða miðaldra karlinn í heimsókn, hinn eina sanna Daða, ansi langt síðan hann stoppaði við í þætti. Þeir grípa tækifærið og fara yfir það í þessum þætti hvað það er að vera miðaldra, enda allir að verða góðir í því fagi með hverjum deginum. Hver kannast ekki við það að vera illt í bakinu, stynja þegar það er staðið upp úr sófa, nú eða tala um veðrið alveg upp úr þurru.
Oct 4, 2026
1 hr 5 sec



Sep 27, 2026
Shower Thoughts
Sep 27, 2026
Sep 27, 2026
55 min
Birkir og Davíð manna skútuna í dag og þeir ætla að fara yfir allskyns sturtupælingar, nei, það er ekki eins og það hljómar...engan perraskap, heldur eru þetta hinar þekktu "Shower thoughts" á enskunni. Djúpar og/eða heimskulegar pælingar, sem fer þó alveg eftir því hver er að hugsa þær!
Sep 27, 2026
55 min



Sep 20, 2026
Kraftaverk
Sep 20, 2026
Sep 20, 2026
50 min
Birkir og Davíð standa vaktina í dag á meðan Þröstur er í bústaðnum sínum, en strákarnir bjalla í hann í smástund og taka púlsinn. Birkir reynir svo að sannfæra Davíð um að kraftaverk séu til, eins og allt sem Jesús og Móses gerðu, en efasemdarmaðurinn Davíð er ekki sannfærður!
Sep 20, 2026
50 min



Sep 13, 2026
Ömurlegar framhaldsmyndir
Sep 13, 2026
Sep 13, 2026
1 hr 5 min
Birkir og Davíð standa vaktina í þessum þætti á meðan Þröstur smíðar sér bústað. Þeir ræða um hvað sumar framhaldsmyndir eru gjörsamlega ömurlegar, eins og til dæmis Jaws 3D, Matrix 4 og Home Alone 3.
Sep 13, 2026
1 hr 5 min



Sep 6, 2026
Óútskýranlegir atburðir
Sep 6, 2026
Sep 6, 2026
53 min
Birkir og Davíð eru í banastuði í þessum þætti og það var ansi mikið hlegið, enda elska þeir ekkert meira en kjánalegar hörmungar annarra! Þeir fara hér yfir óútskýranlega hluti, eins og Bermúda þríhyrninginn, spontaneous human combustion eða á íslenskunni, sjálfskviknun, og margt margt fleira!
Sep 6, 2026
53 min









